Eftir frábærar viðtökur á ljóðverkum Gyrðis Elíassonar síðustu jól ákváðum við systur (dætur Gyrðis) að endurtaka leikinn og völdum, ásamt pabba, okkar uppáhalds ljóð eftir hann og eru þau til sölu hér á síðunni.
Ljóðin sem við völdum eru tólf talsins og hægt er að kaupa þau í og án ramma.
Fyrsta ljóðabók Gyrðis, Svarthvít axlabönd kom út árið 1983 og sú nýlegasta er bókatvennan Dulstirni & Meðan glerið sefur sem kom út árið 2023.